Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Eldhætta af völdum sólar

28. ágúst 2025

Nýverið kviknaði eldur í húsi í Reykjavík þar sem eldsupptök voru með slíkum hætti að ástæða er til að vara við þeim.

Þetta var á sólskinsdegi, en vatnsfyllt glerkúla var í glugga hússins og á hana skein sólin. Við það myndaðist brennipunktur á hillu, rétt innan við gluggakistuna, sem á var tuska og í framhaldinu kviknaði í henni. Í þessu tilviki fór frekar vel og ekki hlaust af mikið tjón, en mál sem þessi koma annað slagið á borð lögreglu sem rannsakar eldsupptök þegar svo ber undir. Nefna má annað mál af þessum toga, en þá skein sól inn um glugga húss og á snyrtispegil á sófaborði og við það myndaðist brennipunktur í setu stóls í herberginu. Úr varð eldur, sem blessunarlega koðnaði niður, en þar voru allir gluggar lokaðir á mannlausu heimili.

Fólk er því minnt á að vanmeta ekki íslenska sólarljósið, sem getur sannarlega kveikt eld við ákveðnar aðstæður. Og huga að hlutum í gluggum og innan þeirra í þessu samhengi þar sem eldhætta getur orðið.