Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Einn sviptur ökuréttindum í Barkarvogi

6. nóvember 2013

Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í gærkvöld, en viðkomandi var staðinn að hraðakstri í Barkarvogi í Reykjavík. Um var að ræða pilt um tvítugt, en bíll hans mældist á 116 km hraða þar sem hámarkshraði er 50. Pilturinn hefur áður verið staðinn að hraðakstri, en þó ekkert í líkingu við þetta.