Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Eftirlit með veitinga- og/eða skemmtistöðum

16. júní 2026

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, ásamt Skattinum, hélt úti eftirliti um helgina þar sem tuttugu veitinga- og/eða skemmtistaðir í umdæminu voru heimsóttir. Gengið var úr skugga um að allt í starfseminni væri lögum samkvæmt, m.a. að öll tilskilin leyfi væru fyrir hendi. Í tæplega helmingi tilvika var allt til fyrirmyndar og engar athugasemdir voru gerðar. Á meirihluta staðanna, eða ellefu, voru hinsvegar gerðar athugasemdir af einhverju tagi og einum þeirra var lokað. Mál sem upp komu við eftirlitið var eftir atvikum vísað til annarra stofnana til frekari meðferðar. Eftirlitinu verður framhaldið.