Eftirlit með eigendum skotvopna
7. júlí 2026
Eftirlit með eigendum skotvopna hefur verið aukið undanfarið og því miður sýna eftirlitsferðir okkar að ekki var vanþörf á – þótt flestir leyfishafar séu með allt sitt í lagi – þá eru alltaf nokkrir sem ekki er með rétta vörslu skotvopna.

Í eftirlitinu verðum við helst vör við:
• Skotvopn og skotfæri geymd saman. Þetta má ekki og alltaf þarf að geyma skotfæri í aðskildri, læstri hirslu. Slík hirsla má vera hólf í sama skáp, en hólfið skal þá vera læst.
• Löggildur skotvopnaskápur ekki til staðar – eða hann ekki fastur með tryggilegum hætti. Skotvopnaskápur verður að vera fastur með tryggilegum hætti – boltaður í gólf eða vegg, þannig að hann verði ekki fjarlægður með auðveldum hætti.
• Lánsheimildir ekki í lagi Hér er átt við að skotvopn eru ekki hjá eigenda og ekki hafa verið gerðar lánsheimildir, eins og lögin gera kröfu um.
Við mælumst til þess að fólk fari yfir þessi atriði – kanni hvort frágangur sé réttur, skápur til staðar og tryggilega festur auk þess að öll skotvopn séu til staðar og lánsheimild til staðar ef svo er ekki.
Að eiga skotvopn er ábyrgðarhluti. Hjálpumst að við að tryggja öruggar vörslur skotvopna og skotfæra.