Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Eftirlit með atvinnustarfsemi

6. febrúar 2026

Í síðustu viku fór fram sameiginlegt eftirlit lögreglustjórans á Suðurnesjum, Skattsins og vinnueftirlitsins. Að þessu sinni var sérstaklega haft eftirlit með veitingastöðum í umdæminu.

Alls voru þrettán veitingastaðir heimsóttir í eftirlitinu en gerðar voru athugasemdir við átta veitingastaði vegna t.d. dvalar- og atvinnuleyfa starfsmanna, framtal skatta og öryggis á vinnustað.

Sameiginleg eftirlit af þessum toga eru framkvæmd reglulega í umdæminu.