Eftirför í kjölfar afskipta
23. september 2026
Í morgun voru lögreglumenn við hraðamælingar á Reykjanesbraut, skammt frá Vogum, er þeir mældu hraða bifreiðar langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Við afskipti af ökumanni kemur í ljós að hann hefur ekki öðlast ökuréttindi en á meðan þessum afskiptum stendur fer ökumaður af vettvangi.

Lögreglumenn fóru á eftir ökumanninum en hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Á meðan eftirför stendur sýnir ökumaður ekki nægjanlega varúð við akstur, ekur yfir leyfilegum hámarkshraða og á móti akstursstefnu. Ökumaður stöðvar bifreiðina nokkru síðar í Reykjanesbæ vegna bilunar bifreiðarinnar. Ökumaður var handtekinn vegna málsins og bíður yfirheyrslu.