Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Búið að staðsetja manninn í ánni.

13. júlí 2016

Björgunarmenn á vettvangi í Sveinsgili hafa nú náð að staðsetja manninn sem leitað hefur verið að í ánni undir skaflinum. Unnið er að því að ná honum upp. Aðrir björgunarsveitarmenn eru að ganga frá á vettvangi, bæði við ána og í Landmannalaugum þar sem vettvangsstjórnstöð hefur verið starfrækt.

Frekari upplýsingar af málinu verða ekki veittar að sinni en Lögreglan á Suðurlandi vill þakka þeim fjölmörgu viðbragðsaðilum sem að leitinni komu fyrir metnaðarfullt og óeigingjarnt starf við leitina.