Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Bruninn í Gufunesi

10. mars 2026

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á brunanum í vöruskemmu við Gufunesveg í Reykjavík í janúar er lokið. Samkvæmt niðurstöðu eldsupptakarannsóknar tæknideildar lögreglu er talið líklegast að eldsupptök hafi orðið út frá hleðslutæki fyrir lyftara, en tveir lyftarar voru í sambandi og hleðslu þegar eldurinn kviknaði.

Engin merki fundust um íkveikju eða gáleysi með eldhvetjandi efni.