Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Bruni í Reykjavík – tveir látnir

23. maí 2025

Tveir karlar eru látnir eftir brunann í vesturbæ Reykjavíkur.

Annar lést í gær en hinn lést af sárum sínum á Landspítalanum fyrr í dag.

Þriðji maðurinn, sem var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp, liggur á Landspítalanum, en hann er ekki í lífshættu.

Rannsókn málsins miðar vel, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.