Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Brotið gegn lögreglusamþykkt

10. maí 2012

Ástin fær fólk til að gera furðulegustu hluti og stundum leggur það sig í hættu hennar vegna. Þannig var um mann sem fór til fundar við gamla kærustu í ónefndri blokk eina nóttina. Vonbiðillinn lét ógert að hringja dyrabjöllunni en klifraði þess í stað upp á svalir íbúðar á þriðju hæð og barði þar í rúðuna. Heimilisfólkið vaknaði við lætin og sá manninn á svölunum. Honum var ekki boðið til stofu enda kannaðist enginn á heimilinu við gömlu kærustuna né hinn óboðna nátthrafn. Maðurinn fór því aftur sömu leið og hann kom og gekk síðan nánast í flasið á lögreglunni. Ekki raskaði hann næturró fleiri manna þessa nótt en engum frekari sögum fer af endurfundum mannsins og gömlu kærustunnar.