Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bifreið stolið í nótt í Hnífsdal.

6. apríl 2004

Rétt upp úr miðnætti í nótt, sem leið, var gamalli Subarubifreið stolið, fyrir utan heimili eiganda í Hnífsdal. Bifreiðinni, sem var með kerru í eftirdragi, var ekið tiltölulega stutta vegalengd í Hnífsdalnum þar til henni var ekið utan í mannlausa bifreið. Þar skammt frá var bifreiðin yfirgefin, eða við gatnamót Heiðarbrautar og Ísafjarðarvegar.

Nokkurt tjón varð á báðum bifreiðunum. Sá er ók bifreiðinni er ófundinn og óskar lögreglan eftir upplýsingum frá þeim sem hugsanlega búa yfir þeim varðandi málið.