Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Barið og stungið með flöskum

6. júní 2012

Tveir tæplega tvítugir karlmenn voru handteknir á hátíðinni „Sjóaranum síkáta“ í Grindavík um síðustu helgi, grunaðir um stórfelldar líkamsárásir í tveimur aðskildum málum. Annar þeirra var staðinn að því að berja mann á sextugsaldri með flösku. Í hinu tilvikinu stakk hinn meinti árásarmaður átján ára pilt nokkrum sinnum í handlegginn með brotinni glerflösku. Gerendurnir voru báðir fluttir á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekin af þeim og var þeim sleppt að því loknu.