Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Banaslys í Mosfellsbæ

9. desember 2025

Karlmaður um þrítugt lést í árekstri jepplings og flutningabíls á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ, sunnan Leirvogsár á móts við Bugðufljót, síðdegis í gær. Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 16.50, en bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt.

Talið er að annarri bifreiðinni hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming. Vesturlandsvegi var lokað í báðar áttir og umferð beint um Kjósarskarðsveg meðan vinna á vettvangi stóð yfir. Hinn látni ók jepplingnum, en ökumann flutningabílsins sakaði ekki.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.