Banaslys á Miklubraut í Reykjavík
6. febrúar 2026
Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöld, en hann var farþegi í bifreið sem var ekið austur Miklubraut þegar slysið varð, á móts við hús Hjálpræðishersins. Ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert og er líðan hans eftir atvikum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.