Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Aukinn viðbúnaður lögreglu og viðbragðsaðila vegna almyrkva á sólu á Reykjanesi 12. ágúst næstkomandi

10. ágúst 2026

Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst.

Vegna þess mikla fjölda fólks sem búist er við að fylgist með almyrkvanum á Reykjanesi verður viðbúnaður viðbragðsaðila aukinn. Lögreglan nýtur aðstoðar björgunarsveita við þau verkefni sem upp kunna að koma. Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur ásamt Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verða einnig með aukinn viðbúnað.

Aðgerðastjórn verður virkjuð í Reykjanesbæ og þrjár vettvangsstjórnir verða starfræktar á svæðinu til að tryggja skilvirka samhæfingu viðbragðsaðila og viðbrögð við mögulegum atvikum.

Almyrkvinn sést vel úr þéttbýli

Íbúar á Reykjanesi eru minntir á að almyrkvinn sést vel frá heimilum í þéttbýli á svæðinu. Ekki er því nauðsynlegt að leggja í langferð til að njóta þessa einstaka sjónarspils.

Sveitarfélögin á svæðinu hafa jafnframt komið upp safnstöðum á völdum stöðum þar sem fólk getur komið saman og fylgst með almyrkvanum. Upplýsingar um safnstaði, viðburði og bílastæði er að finna á heimasíðum sveitarfélaganna og á heimasíðu Markaðsstofu Reykjanes á visitreykjanes.is

Fólk er hvatt til að ganga eða hjóla á safnstaði innan þéttbýlis, eftir því sem aðstæður leyfa. Með því má draga úr umferðarálagi og auðvelda viðbragðsaðilum að komast leiðar sinnar ef útköll eða önnur verkefni koma upp.

Þeir sem ætla að ferðast – farið snemma af stað

Þeir sem hyggjast ferðast um Reykjanes eru hvattir til að leggja snemma af stað og gera ráð fyrir að dvelja lengur á áfangastað en venjulega jafnvel eftir að almyrkva líkur. Búast má við miklu umferðarálagi og töfum á vegum á Reykjanesi.

Fólk er jafnframt hvatt til að hafa með sér mat og drykk og, fyrir þá sem þurfa á reglulegri lyfjagjöf að halda, að huga að því að hafa nægjanlegt magn lyfja meðferðis. Mikilvægt er að vera vel undirbúinn fyrir mögulegar tafir og lengri dvöl í umferðinni.

Ekki leggja á vegum eða vegöxlum

Óheimilt er að leggja ökutækjum á vegum eða vegöxlum. Ökutæki sem lagt er þannig að það hindri umferð eða skapi hættu verður fjarlægt á kostnað eiganda.

Fólk er beðið um að virða merkingar, lokanir og fyrirmæli lögreglu og annarra viðbragðsaðila og nota eingöngu skilgreind bílastæði.

Sérstakar einstefnur og lokanir

Vegna umferðarálags verða sérstakar umferðartakmarkanir og einstefnur á ákveðnum leiðum.

  • Garðskagavegur/Stafnesvegur (45):

    Einstefna verður frá Nesvegi/Hafnarvegi með akstursstefna til norðurs í átt að Sandgerði

  • Vatnsleysustrandarvegur (420):

    Einstefna frá Vogum með akstursstefna til austurs í átt að Kúagerði.

  • Bláalónsvegur:

    Lokað er fyrir umferð

  • Skagabraut að Garðskagavita:

    Einstefna verður að Garðskaga og keyrt til baka um Útgarðsveg að golfskálanum í Sandgerði

  • Höskuldarvallarvegur:

    Lokað er fyrir umferð

Ökumenn eru beðnir um að kynna sér fyrirkomulag umferðar og skipuleggja ferð sína með hliðsjón af því.

Flugfarþegar um Keflavíkurflugvöll – mætið tímanlega

Farþegar sem ferðast frá Keflavíkurflugvelli eru sérstaklega hvattir til að mæta tímanlega fyrir flug og gera ráð fyrir mögulegum töfum á leið til flugvallar.

Þeir sem koma til landsins eru beðnir um að sýna þolinmæði, enda má búast við umtalsverðu umferðarálagi og töfum á Reykjanesi meðan á almyrkvanum stendur.

GSM-kerfið getur orðið fyrir álagi

Viðbúið er að mikið álag verði á GSM-farsímakerfið, sérstaklega á stöðum utan þéttbýlis þar sem mikill fjöldi fólks kann að safnast saman.

Mikilvægt er að hafa í huga að mögulegt er að erfitt geti reynst að ná sambandi vegna álags á kerfinu.

Neyðarnúmer 112

Við minnum á neyðarnúmerið 112 ef þörf er á aðstoð viðbragðsaðila.

Ef ekki næst í hefðbundna neyðarnúmerið 112 er hægt að reyna varanúmer Neyðarlínunnar: 599 0112.

Verið með sólmyrkvagleraugu

Þeir sem ætla að fylgjast með almyrkvanum eru minntir á að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er beint til sólar. Rétt sólmyrkvagleraugu eru nauðsynleg til að horfa örugglega á sólina fyrir og eftir almyrkvann.

Fylgið ávallt leiðbeiningum um rétta notkun gleraugnanna og notið ekki venjuleg sólgleraugu í þeirra stað.

Skipuleggjum daginn vel

Almyrkvi er sjaldgæfur og einstakur viðburður og við viljum að allir geti notið hans á öruggan og ánægjulegan hátt.

Skipuleggið ferðina vel, farið tímanlega af stað, hafið mat, drykk og nauðsynleg lyf meðferðis, notið viðurkennd sólmyrkvagleraugu og fylgið fyrirmælum viðbragðsaðila.

Nánari upplýsingar um safnstaði, bílastæði, viðburði og skipulag vegna almyrkvans má finna á heimasíðum sveitarfélaganna, visitreykjanes.is og solmyrkvi2026.is en þar er einnig fróðleikur um almyrkan.

Með sameiginlegri ábyrgð, tillitssemi og góðum undirbúningi getum við öll notið almyrkvans á öruggan hátt og komið heil heim.


Enska:

Increased preparedness due to the total solar eclipse on the Reykjanes Peninsula on 12 August

The Suðurnes Police, ICE-SAR search and rescue teams, Suðurnes Fire and Rescue Service, Grindavík Fire and Rescue and the Suðurnes Health Institution will increase their level of preparedness due to the total solar eclipse on Wednesday, 12 August.

A large number of people are expected to travel to the Reykjanes Peninsula to observe the eclipse, and emergency preparedness will therefore be increased. The police will receive assistance from search and rescue teams with tasks that may arise. Suðurnes Fire and Rescue Service, Grindavík Fire and Rescue Service and the Suðurnes Health Institution will also have increased preparedness.

An emergency response command centre will be activated in Reykjanesbær, and three field command posts will operate in the area to ensure effective coordination between emergency response agencies and an efficient response to possible incidents.

The total eclipse can be seen well from urban areas

Residents of Reykjanes are reminded that the total eclipse can be seen well from homes in urban areas. It is therefore not necessary to travel long distances to enjoy this unique event.

The municipalities in the area have also established designated gathering areas where people can meet and observe the eclipse. Information about gathering areas, events and parking can be found on the municipalities' websites and on the website, visitreykjanes.is.

People are encouraged to walk or cycle to gathering areas within urban areas where possible. This can help reduce traffic congestion and make it easier for emergency services to reach incidents if needed.

If you are travelling – leave early

Those planning to travel around Reykjanes are encouraged to leave early and to expect to stay at their destination longer than usual, possibly even after the eclipse has ended. Heavy traffic and delays are expected on roads throughout Reykjanes.

People are also encouraged to bring food and drinks with them. Those who require regular medication should consider bringing a sufficient supply of their medication. It is important to be prepared for possible delays and a longer time spent in traffic.

Do not park on roads or road shoulders

Parking on roads or road shoulders is prohibited. Vehicles parked in a way that obstructs traffic or creates a hazard will be removed at the owner's expense.

People are asked to respect road signs, closures and instructions from the police and other emergency responders, and to use designated parking areas only.

Special one-way traffic arrangements and road closures

Due to increased traffic, special traffic restrictions and one-way systems will be in effect on certain roads:

  • Garðskagavegur/Stafnesvegur (Road 45):

    One-way traffic from Nesvegur/Hafnarvegur north towards Sandgerði.

  • Vatnsleysustrandarvegur (Road 420):

    One-way traffic from Vogar east towards Kúagerði.

  • Bláalónsvegur:

    Closed to traffic.

  • Skagabraut towards Garðskagaviti:

    One-way traffic towards Garðskagi, with return traffic via Útgarðsvegur to the golf club in Sandgerði.

Drivers are asked to familiarise themselves with these arrangements and plan their journeys accordingly.

Passengers travelling through Keflavík International Airport – allow extra time

Passengers departing from Keflavík International Airport are strongly encouraged to arrive well in advance of their flight and allow extra time for possible traffic delays on the way to the airport.

Passengers arriving in Iceland are asked to be patient, as significant traffic congestion and delays may occur on Reykjanes during the eclipse.

Mobile phone networks may become overloaded

Heavy demand is expected on mobile phone networks, particularly in areas outside urban centres where large numbers of people may gather.

People are therefore encouraged to be prepared and not rely solely on mobile phone service. It may be difficult to establish a connection due to network congestion.

Emergency number: 112

Please remember the emergency number 112 if emergency assistance is required.

If you are unable to reach 112, you may try the Neyðarlínan emergency service backup number: +354 599 0112.

Wear proper solar eclipse glasses

Anyone observing the eclipse is reminded to use approved solar eclipse glasses when looking directly at the Sun. Proper solar eclipse glasses are necessary for safe viewing of the Sun before and after totality.

Always follow the manufacturer's instructions for using the glasses and never use ordinary sunglasses as a substitute.

Plan ahead

A total solar eclipse is a rare and unique event, and we want everyone to be able to enjoy it safely.

Plan your journey carefully, leave early, bring food, drinks and any necessary medication, use approved solar eclipse glasses and follow the instructions of emergency responders.

Further information about gathering areas, parking, events and arrangements for the eclipse can be found on the websites of the municipalities, visitreykjanes.is and solmyrkvi2026.is, where you can also find information about the total solar eclipse.

With cooperation, consideration and good preparation, we can all enjoy the eclipse safely and return home safely.


Pólska:

Zwiększona gotowość służb w związku z całkowitym zaćmieniem Słońca na półwyspie Reykjanes 12 sierpnia

Policja w Suðurnes, zespoły poszukiwawczo-ratownicze ICE-SAR, służby ratownictwa pożarowego Suðurnes, straż pożarna w Grindavík oraz placówka ochrony zdrowia Suðurnes zwiększą poziom gotowości w związku z całkowitym zaćmieniem Słońca, które nastąpi w środę 12 sierpnia.

W związku z przewidywanym dużym napływem osób, które będą chciały obserwować zaćmienie na półwyspie Reykjanes, służby ratunkowe zwiększą swoją gotowość. Policja będzie korzystać ze wsparcia zespołów poszukiwawczo-ratowniczych przy realizacji zadań, które mogą pojawić się w tym czasie. Zwiększoną gotowość będą również utrzymywać służby ratownictwa pożarowego Suðurnes, straż pożarna w Grindavík oraz placówka ochrony zdrowia Suðurnes.

W Reykjanesbær zostanie uruchomione centrum dowodzenia działaniami ratowniczymi, a na terenie półwyspu będą działać trzy punkty dowodzenia w terenie. Ich zadaniem będzie zapewnienie sprawnej koordynacji służb ratunkowych oraz skutecznego reagowania na ewentualne zdarzenia.

Całkowite zaćmienie będzie dobrze widoczne z terenów zabudowanych

Mieszkańcom Reykjanes przypomina się, że całkowite zaćmienie będzie dobrze widoczne z domów na terenach zabudowanych. Nie ma więc konieczności pokonywania dużych odległości, aby obserwować to wyjątkowe zjawisko.

Gminy na tym obszarze przygotowały również wyznaczone miejsca, w których można będzie wspólnie obserwować zaćmienie. Informacje dotyczące miejsc obserwacji, wydarzeń oraz parkingów można znaleźć na stronach internetowych poszczególnych gmin oraz na stronie Reykjanes Marketing Office: visitreykjanes.is.

W miarę możliwości zachęcamy do docierania do miejsc obserwacji pieszo lub rowerem, szczególnie w obrębie terenów zabudowanych. Pomoże to ograniczyć natężenie ruchu i ułatwi służbom ratunkowym dotarcie do miejsc ewentualnych zdarzeń.

Jeśli planujesz podróż – wyjedź wcześniej

Osoby planujące podróż po Reykjanes są proszone o wcześniejsze rozpoczęcie podróży i przygotowanie się na to, że pobyt w miejscu docelowym może potrwać dłużej niż zwykle, również po zakończeniu zaćmienia. Na drogach Reykjanes należy spodziewać się dużego natężenia ruchu i opóźnień.

Zaleca się również zabranie ze sobą jedzenia i napojów. Osoby przyjmujące regularnie leki powinny zadbać o odpowiedni zapas leków na czas podróży. Należy być przygotowanym na możliwe opóźnienia i dłuższy czas spędzony w samochodzie.

Nie wolno parkować na jezdniach ani poboczach

Parkowanie na jezdniach i poboczach jest zabronione. Pojazdy zaparkowane w sposób utrudniający ruch lub stwarzający zagrożenie będą usuwane na koszt właściciela.

Prosimy o przestrzeganie znaków drogowych, zamknięć dróg oraz poleceń policji i innych służb ratunkowych. Należy korzystać wyłącznie z wyznaczonych miejsc parkingowych.

Specjalna organizacja ruchu i zamknięcia dróg

Ze względu na zwiększone natężenie ruchu na wybranych drogach zostaną wprowadzone specjalne zasady organizacji ruchu, w tym ruch jednokierunkowy:

  • Garðskagavegur/Stafnesvegur (droga nr 45):

    ruch jednokierunkowy od Nesvegur/Hafnarvegur na północ, w kierunku Sandgerði.

  • Vatnsleysustrandarvegur (droga nr 420):

    ruch jednokierunkowy od Vogar na wschód, w kierunku Kúagerði.

  • Bláalónsvegur:

    droga zamknięta dla ruchu.

  • Skagabraut w kierunku latarni Garðskagaviti:

    ruch jednokierunkowy w kierunku Garðskagi, a powrót przez Útgarðsvegur w kierunku pola golfowego w Sandgerði.

Kierowcy proszeni są o zapoznanie się z organizacją ruchu i odpowiednie zaplanowanie podróży.

Pasażerowie korzystający z lotniska Keflavík – przyjedźcie wcześniej

Pasażerowie odlatujący z międzynarodowego lotniska Keflavík są szczególnie proszeni o przybycie na lotnisko z odpowiednim wyprzedzeniem i uwzględnienie możliwych opóźnień w ruchu drogowym.

Osoby przylatujące do Islandii proszone są o cierpliwość, ponieważ podczas zaćmienia na Reykjanes mogą wystąpić znaczne korki i opóźnienia.

Sieć telefonii komórkowej może być przeciążona

Należy liczyć się ze znacznym obciążeniem sieci telefonii komórkowej, szczególnie poza terenami zabudowanymi, gdzie może zgromadzić się duża liczba osób.

Prosimy o odpowiednie przygotowanie i niezależne poleganie wyłącznie na telefonie komórkowym. Z powodu przeciążenia sieci uzyskanie połączenia może być czasowo utrudnione.

Numer alarmowy 112

W sytuacji wymagającej pomocy służb ratunkowych należy dzwonić pod numer alarmowy 112.

Jeżeli nie można połączyć się z numerem 112, można spróbować skorzystać z zapasowego numeru służby alarmowej Neyðarlínan: 599 0112.

Używaj odpowiednich okularów do obserwacji zaćmienia

Osoby obserwujące zaćmienie przypomina się o konieczności używania certyfikowanych okularów do obserwacji zaćmienia Słońca podczas bezpośredniego patrzenia na Słońce. Odpowiednie okulary są niezbędne do bezpiecznej obserwacji Słońca przed i po fazie całkowitego zaćmienia.

Należy zawsze przestrzegać instrukcji dotyczących prawidłowego używania okularów. Zwykłe okulary przeciwsłoneczne nie zapewniają odpowiedniej ochrony i nie mogą ich zastępować.

Zaplanuj dzień z wyprzedzeniem

Całkowite zaćmienie Słońca jest rzadkim i wyjątkowym wydarzeniem. Chcemy, aby każdy mógł bezpiecznie i spokojnie cieszyć się tym niezwykłym zjawiskiem.

Zaplanuj podróż, wyjedź odpowiednio wcześnie, zabierz ze sobą jedzenie, napoje i niezbędne leki, używaj certyfikowanych okularów do obserwacji zaćmienia oraz stosuj się do poleceń służb ratunkowych.

Dalsze informacje dotyczące miejsc obserwacji, parkingów, wydarzeń i organizacji ruchu można znaleźć na stronach internetowych gmin, a także na visitreykjanes.is oraz solmyrkvi2026.is. Znajdują się tam również informacje dotyczące całkowitego zaćmienia Słońca.

Dzięki wspólnej odpowiedzialności, wzajemnej trosce i dobremu przygotowaniu możemy bezpiecznie cieszyć się zaćmieniem i wszyscy bezpiecznie wrócić do domu.