Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Aukið umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu

19. ágúst 2011

Vegna skólabyrjunar í næstu viku má búast við stóraukinni umferð í bítið á morgnana og síðdegis. Lögregla hvetur ökumenn til að gera ráð fyrir þessu í tímaáætlunum sínum. Lögregla mun á sama tíma auka sýnilegt eftirlit á stofnæðum höfuðborgarsvæðisins sérstaklega en einnig í íbúðahverfum í nágrenni við grunnskóla. Markmiðið er sem fyrr að minna ökumenn á að fara varlega í umferðinni.