Lögreglan í Vestmannaeyjum auglýsir eftir vitnum að árekstri
14. október 2025
Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að árekstri og afstungu.

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að árekstri sem varð þann 30. ágúst s.l. milli kl. 14:45 og 15:15. Líklegast hefur áreksturinn átt sér stað á Strandvegi móts við söluturninn Klett eða á Bárustíg í bifreiðastæði móts við verslun Icewear. Ekið var á svarta Audi E-Tron 50 bifreið og ók gerandinn í burtu án þess að tilkynna um óhappið.
Þeir sem telja sig hafa einhverjar upplýsingar um ofangreindan árekstur eru vinsamlega beðnir að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum.