Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Átta óku undir áhrifum fíkniefna

15. maí 2012

Um helgina voru átta ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Tveir voru stöðvaðir á föstudagskvöld, tveir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 16-50 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.