Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Atkvæðastimpill vegna sveitarstjórnarkosninga

28. maí 2010

Á sýsluskrifstofunni á Ísafirði fer fram utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.

Nú í morgun kom í ljós að einn þeirra stimpla sem notaðir eru við þá atkvæðagreiðslu var horfinn úr kjörklefanum.

Þeir eða sá sem er með stimpilinn undir höndum er vinsamlegast beðinn um að skila honum á sýsluskrifstofuna á Ísafirði sem fyrst. Einnig má koma upplýsingum um atvikið til sýsluskrifstofunnar, í síma 450 3700.