Þessi frétt er meira en árs gömul
Árlegur fundur Norrænna fingrafarasérfræðinga
12. september 2007
Ríkislögreglustjórinn býður nú til árlegs fundar fingrafarasérfræðinga lögreglu á Norðurlöndunum. Fundurinn hófst í morgun og lýkur síðari hluta dags á morgun, fimmtudag. Þarna eru saman komnir 16 af helstu fingrafarasérfræðinga lögreglu á Norðurlöndunum til að bera saman bækur sínar og miðla af reynslu sinni.