Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Annar dagur þjóðhátíðar 2017.

6. ágúst 2017

Nokkur erill var hjá lögreglunni síðustu nótt en mikill fjöldi þjóðhátíðargesta var í Herjólfsdal. Fjórir gista fangageymslu vegna ölvunar og ofbeldisbrota. Í einu ofbeldisbrotinu var aðili sleginn þannig að tennur brotnuðu. Allir sem gista fangageymslu verða yfirheyrðir í dag eða leystir út með sekt vegna brota á áfengislögum.

Fíkniefnamálum fjölgaði frá því gær og eru þau komin á fjórða tug. Í einu málinu var gerð húsleit í húsi í bænum og fannst þar um 20 gr. af hvítu efni. Talið er að hér sé um sölumál að ræða. Mest hefur verið lagt hald á hvít efni, amfetamín og kókaín.

Mikil umferðarteppa var í miðbæ Vestmannaeyja í gærdag þar sem mikill mannfjöldi hafði safnast saman við veitingastaði og götum verið lokað. Lögregla leysti farsællega úr málum en umferð hefur aukist gríðarlega í Vestmannaeyjum eins og gefur að skilja.

Í dag mun Herjólfur fara fimm ferðir til Landeyjarhafnar og er fullbókað í þær ferðir og munu því bætast við tvö til þrjú þúsund manns við þann mikla fjölda sem fyrir er. Áætlað er að á brekkusöngnum á miðnætti verði um fimmtán til sextánþúsund manns.