Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Alvarlegt umferðarslys – vitni óskast

6. febrúar 2026

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að mjög alvarlegu umferðarslysi sem varð á Miklubraut í Reykjavík í gærkvöld, en tilkynning um slysið barst kl. 23.18. Þar hafði bifreið staðnæmst við stólpa Vegagerðarinnar, á móts við hús Hjálpræðishersins, eftir að hafa verið ekið austur Miklubraut.

Lögreglan leitar einnig eftir myndefni frá þeim sem fóru þarna um í aðdraganda slyssins og á það við um báðar akstursáttir, þ.e. til austurs og vesturs. Mörg ökutæki eru búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra. Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfangið abending@lrh.is og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í síma 444 1000.