Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Alvarlegt umferðarslys í Borgarfirði

9. mars 2025

Þann 6. mars varð alvarlegt umferðarslys á gatnamótum Vesturlandsvegar og Vestfjarðarvegar í Borgarfirði.

Lögreglustjarna (.png)

Fólksbifreið og hópbifreið rákust þar saman á gatnamótunum. Fjölmennt lið björgunaraðila var sent á vettvang, lögregla, sjúkralið, slökkvilið ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Barn á öðru aldursári lést í slysinu en aðrir eru ekki alvarlega slasaðir.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi fer með rannsókn málsins.