Alvarleg líkamsárás til rannsóknar
6. október 2026
Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem átti sér stað aðfaranótt föstudags í Reykjanesbæ. Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir á þessu stigi rannsóknarinnar leikur grunur á að fleiri en einn aðili hafi ráðist á brotaþola og að barefli hafi verið beitt.

Brotaþoli leitaði sjálfur á sjúkrahús og fékk þar aðhlynningu.
Húsleitir hafa verið framkvæmdar í tengslum við málið. Tveir sakborningar hafa verið handteknir og færðir til skýrslutöku en voru látnir lausir að skýrslutökum loknum. Fleiri eru grunaðir um aðild að málinu og er þeirra leitað.
Brotaþoli er á þrítugsaldri. Þeir sem grunaðir eru um aðild að árásinni eru á þrítugs, fertugs og fimmtugsaldri.
Rannsókn málsins stendur yfir og er er ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.