Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Alvarleg líkamsárás – fimm í gæsluvarðhaldi

18. mars 2026

Fimm karlar voru í gærkvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegi líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík aðfaranótt þriðjudags, en tilkynning um málið barst lögreglu á öðrum tímanum í fyrrinótt.

Fjórir mannanna voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags og sá fimmti til miðvikudags í næstu viku. Þeir eru taldir hafa ráðist að þremur mönnum og slasaðist einn þeirra sýnu mestu, en sá var fluttur á Landspítalann og síðan færður þar á gjörgæsludeild. Hinir tveir slösuðust minna, en árásin var lífshættuleg. Upphaflega voru sjö menn handteknir vegna málsins, en tveimur þeirra hefur verið sleppt úr haldi lögreglu.