Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Alvarleg líkamsárás – áframhaldandi gæsluvarðhald

25. mars 2026

Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. apríl á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku.

Rannsókn málsins er í fullum gangi og er í algjörum forgangi hjá embættinu. Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en einn til viðbótar situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar. Gæsluvarðhaldið yfir honum rennur út á föstudag.