Alþjóðleg lögregluaðgerð
11. júní 2026
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð þar sem ráðist var gegn netþjónustu sem gekk undir nafninu AudiA6. Þar fór fram mjög umfangsmikið peningaþvætti skipulagðra brotahópa, en rannsókn málsins, sem stóð yfir í langan tíma, teygði sig um víða veröld. Hér heima vann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ásamt embætti ríkissaksóknara að málinu í góðri samvinnu við íslenskt hýsingarfyrirtæki, en íslenskir innviðir voru misnotaðir af þessum brotamönnum. Tveir fulltrúar frá bandarískri löggæslustofnun komu til Íslands vegna þessa, en enginn var þó handtekinn hér í tengslum við málið. Sjá nánar á heimasíðu Europol.
