Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Almyrkvi á sólu 12. ágúst – gott að vita

12. ágúst 2026

Takmarkanir á aðgengi Seltjarnarnes: Suðurströnd verður lokuð fyrir bílaumferð frá Vivaldi-velli / sundlaug að austanverðu og við Lindarbraut og Nesbala að vestan frá kl. 15.00 til 19.00. Allar þvergötur sem liggja að Suðurströnd verða einnig lokaðar. Bent er á bílastæði við sundlaug, Austurströnd og Eiðistorg. Lokað verður fyrir akstur um Norðurströnd vestan Lindarbrautar frá kl. 15.00 til kl. 19.00. Bent er á bílastæði við Austurströnd og Eiðistorg. Ekki er leyfilegt að fara út í Gróttu þann 12. ágúst. Flóð er á meðan almyrkva stendur. Akstursleið út að Gróttu verður lokuð við Lindarbraut frá kl. 15.00 og til kl. 19.00. Strætó fær að keyra um Seltjarnarnesið óháð lokunum til að auðvelda fólki að komast ferða sinna og nær vestursvæðum Seltjarnarness þar sem gera má ráð fyrir að flestir vilji koma sér fyrir. Reykjavík: Suðurgata verður lokuð fyrir akstri við Hringbraut frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Allar þvergötur Suðurgötu verða einnig lokaðar nema Þórsgata en um hana er opið fyrir umferð í Skerjafjörð. Ægisíða verður lokuð fyrir bílaumferð við Hofsvallagötu, Fornhaga og Dunhaga frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Einnig verður lokað fyrir bílaumferð við Lynghaga og Starhaga á þessum tíma. Garðabær: Einstefnuakstur (hringakstur) verður um Álftanes frá kl. 15:00 til kl. 20:00 í norður- og vesturátt, um Norðurnes- og Suðurnesveg frá hringtorgi við Bessastaðaafleggjara. Hámarkshraði verður tekinn niður í 30 km/klst á hluta Suðurnesvegar. Bílastæði verða útbúin við óbyggðar lóðir í Gásamýri og Svanamýri auk þess sem hægt verður að leggja í grennd við íþróttamiðstöðina á Álftanesi. Hafnarfjörður: Vegna viðburðar á Víðistaðatúni verður götum í næsta nágrenni lokað eða umferð skert þann 12. ágúst. Frá kl. 10 að morgni til miðnættis verður lokað fyrir umferð um Hamrabrún við gatnamót Hraunbrúnar og Garðavegs. Íbúum verður þó leyft að aka götuna og munu þeir fá sérstaka aksturspassa afhenta hjá viðburðahöldurum sem verða með gæslu við Hamrabrún þann 12. ágúst. Hafa íbúar aðgang að Hambrabrún frá Reykjavíkurvegi eða Hjallabraut. Ekki verður hægt að aka um Hraunbrún frá Hellisgötu eða Garðavegi. Frá kl. 11 að morgni til kl. 15 síðdegis og frá kl. 20 til 23 þann 12. ágúst verður umferð stýrt um Hjallabraut og umferð því takmörkuð þar á þeim tímum.

Skilgreindir safnstaðir í byggðakjörnum. Seltjarnarnes: Suðurströnd, Reykjavík: Ægisíða, Garðabær: Álftanes – fjaran vestan við íþróttasvæðið, Hafnarfjörður: Hamarinn (bílastæði við Flensborgarskóla) og Ástjörn (bílastæði við íþróttasvæði Hauka) og Mosfellsbær: Tungubakkar.

Tekið af island.is (upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst)