Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Almenningi boðið í heimsókn.

25. apríl 2003

Í tilefni 200 ára afmæli hinnar íslensku einkennisklæddu lögreglu er almenningi boðið í heimsókn á lögreglustöðina á Ísafirði milli kl.11:00 til 17:00 á morgun, laugardaginn 26. apríl 2003.

Í tilefni dagsins verða m.a. til sýnis á lögreglustöðinni einkennismerki lögreglunnar, bæði íslensk og frá lögregluliðum víðs vegar um heim.

Lúlli löggubangsi verður í móttökuliði lögreglunnar og mun hann heilsa upp á yngstu gestina. Þá verður saga ísfirsku lögreglunnar rakin í stuttu máli. Lögreglubifreiðar verða til sýnis og eru foreldrar hvattir til að koma með börn sín og jafnvel að taka ljósmyndir af börnunum á lögreglustöðinni og í bifreiðum lögreglunnar.

Heitt verður á könnunni eins og á góðum lögreglustöðum er siður. Þá verður eitthvað til að bíta í fyrir börnin og Lúlli ætlar að gefa þeim eitthvað til minningar um heimsóknina.