Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir árið 2013

27. júní 2014

Árið 2013 var heildarfjöldi skráðra brota 53.255 sem er um 14% færri brot en árið 2012. Fækkunin skýrist að mestu leyti af því að umferðarlagabrot voru 18% færri árið 2013 en árið 2012 en einnig fækkaði hegningarlagabrotum um 4%. Hegningarlagabrot hafa ekki verið færri frá því að samræmd skráning hjá lögreglu hófst árið 1999 og þegar miðað er við meðaltal síðust þriggja ára á undan munar hlutfallslega mest um fækkun auðgunarbrota, eignaspjalla, nytjastulda og skjalafalsa.

Fjölgun var í nokkrum brotaflokkum og var hlutfallslega mest fjölgun á kynferðisbrotum en þeim fjölgaði í öllum undirflokkum, í heildina um 118%.

Skýrsluna Afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir árið 2013 má finna hér.