Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Aðildarsamkomulag Íslands að evrópska lögregluskólastarfinu (CEPOL)

29. júní 2006

Fulltrúar Lögregluskóla ríkisins, norska lögregluháskólans og evrópska lögregluskólastarfsins (CEPOL) undirrituðu þann 27. júní s.l. aðildarsamkomulag Íslands og Noregs að evrópska lögregluskólastarfinu. Undirritunin fór fram í Þjóðmenningarhúsinu.

Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, gerði samkomulagið og Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, staðfesti það fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Af hálfu CEPOL staðfestu samkomulagið með undirritun sinni þeir Ulf Göransson, framkvæmdastjóri CEPOL og Dr. János Fehérváry, formaður stjórnar CEPOL.

Fyrir Lögregluskóla ríkisins þýðir þessi aðild að opnað er á nánara samstarf við evrópska lögregluskóla um þjálfun og upplýsingaskipti. Meginviðfangsefni CEPOL eru að efla samstarf og virkni lögregluliða, miðla upplýsingum um niðurstöður rannsókna og starfsvenjur og annast þjálfunarnámskeið fyrir háttsetta lögreglumenn. Viðfangsefnin tengjast jafnan baráttunni gegn afbrotum, s.s. afbrotum yfir landamæri innan Evrópu, viðnámi gegn hryðjuverkum, ólöglegum innflytjendum, landamæravörslu, mansali og hvers konar alþjóðlegri glæpastarfsemi.

Lögregluskólarnir á Íslandi og Noregi verða með þessu virkir þátttakendur í starfi CEPOL og fá aðgang að rafrænu netkerfi CEPOL ásamt námsneti evrópskra lögregluliða.

Með samkomulaginu er lögregluskólum landa utan Evrópusambandsins í fyrsta sinn veitt aðild að evrópska lögregluskólastarfinu.

Frá undirritun samkomulagsins, Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, Ulf Göransson, framkvæmdastjóri CEPOL og Dr. János Fehérváry, formaður stjórnar CEPOL.

Frá undirritun samkomulagsins, Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, Ulf Göransson, framkvæmdastjóri CEPOL og Dr. János Fehérváry, formaður stjórnar CEPOL.