Aðgerðir í Mosfellsdal ganga vel
29. júlí 2026
Heildarmynd á aðstæðum í Mosfellsdal er að verða skýrari. Ekki hafa sést eða borist tilkynningar um dýr lengra en 500 metra frá búinu. Drónar með hitamyndavél hafa verið notaðir í allan morgun. Búið er að ná mörgum dýrum og aðgerðir ganga vel.

Næstu skref eru að fanga dýr sem eru innan öryggisgirðingar og koma þeim inn í hús. Þegar því er lokið halda minkaveiðimenn áfram með hunda í næsta nágrenni við búið og munu halda því áfram eins lengi og þörf er á.