Að bregðast hratt við ofbeldishegðun
17. apríl 2026
Púlsinn - Bráða- og viðbragðsteymi gegn ofbeldi meðal barna, hefur tekið til starfa. Markmið Púlsins er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi. Teymið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH), Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu. Það er hluti af aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Púlsinum er ætlað skýra og auðvelda boðleiðir og tryggja skilvirka samvinnu allra þjónustuveitenda og -kerfa.

Í Púlsinum starfar hópur sérfræðinga sem hefur mikla reynslu af því að vinna með ungmennum í vanda. Hópnum er ætlað að bregðast hratt við og veita börnum sem beita ofbeldi viðeigandi stuðning með það að markmiði að draga úr líkum á að slík brot endurtaki sig.
Púlsinn hefur aðsetur í Suðurmiðstöð Reykjavíkurborgar en starfsfólk teymisins er á ferðinni á milli sveitarfélaganna, eftir því sem aðstæður krefja. Skóli, félagsmiðstöð, félags- og barnaverndarþjónusta, lögregla og aðrir sem veita börnum þjónustu geta virkjað Púlsinn.
Telji foreldrar eða forsjáraðilar að Púlsinn ætti að koma að máli þeirra barns er fyrsta skrefið að hafa samband við einhvern ofangreindra og óska eftir aðstoð við að tengjast teyminu.
Myndin var tekin við undirritun samstafssamingsins í dag.