Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Á 163 km. hraða á Reykjanesbraut

14. nóvember 2016

Erlendur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum mældi á 163 km. hraða á Reykjanesbraut í gærdag, þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund, kvaðst vera að flýta sér að ná flugi til heimalandsins. Tveir ökumenn til viðbótar mældust á 139 kílómetra hraða á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi og sá fjórði ók á 135 km. hraða á Reykjanesbrautinni.