Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

400 reiðhjól á uppboði

3. maí 2007

Liðlega 400 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nk. laugardag, 5. maí, klukkan 13.30. Uppboðið verður haldið í húsnæði Vöku að Eldshöfða 4 í Reykjavík. Að þessu sinni verða eingöngu boðin upp reiðhjól enda safnast þau upp hjá lögreglunni sem aldrei fyrr. Þetta eru reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja.

Fjölmargir aðrir munir safnast upp hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en annað uppboð er fyrirhugað síðar á árinu.