Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þjófnaður á Ísafirði upplýstur.

16. október 2015

Um kl.11:00 í morgun barst lögreglunni á Vestfjörðum tilkynning um að utanborðsmótor tilheyrandi seglskútu hafi verið stolið í nótt sem leið, þar sem skútan lá við bryggju á Ísafirði. Um er að ræða verðmæti upp á nokkur hundruð þúsund krónur.

Rannsókn málsins hefur gengið vel og nú, um kl.15:00 í dag, hafði lögreglan handtekið fjóra unga menn, yfirheyrt og framkvæmt húsleit á heimili eins þeirra, þar sem umræddur mótor fannst. Mótornum hefur verið komið til skila til eiganda.

Mennirnir fjórir viðurkenndu allir aðild sína að þjófnaðinum. Þeir hafa allir áður komið við sögu vegna ýmissa afbrota. Þeim hefur verið sleppt lausum