Svefnmiðstöð Landspítala
Símanúmer, opnunartími og staðsetning
Helstu símanúmer
Tímabókun eða breyting á tímum fyrir þá sem:
Eru í meðferð með svefnöndunartæki, frá 13 til 15:45, í síma: 543 6025
Koma í svefnmælingu (greiningu), frá 9 til 12 og 13 til 15 í síma: 543 6035
Panta eða endurnýja svefnbúnað, frá 8:15 til 12:15 í síma 543 6025 eða með tölvupósti á svefnmidstodin@landspitali.is, tilgreinið kennitölu, tegund grímu og stærð.
Afgreiðsla búnaðar
Athugið að afgreiðsla búnaðar fer eingöngu fram í síma eða í tölvupósti og er sóttur hjá öryggisvörðum í Fossvogi milli kl 16:00 og 22:00.
Ritarar geta ekki afgreitt vörur beint frá deildinni nema eftir samráð við starfsfólk deildarinnar.
Pantanir eru geymdar hjá öryggisvörðum í tvo virka daga. Ef ekki næst að sækja innan þess tíma fer búnaður til baka og panta þarf aftur.
Þeir sem búa á landsbyggðinni fá vörurnar sendar án sendingakostnaðar.
Þeir sem búa á Reykjavíkursvæðinu geta komið og sótt hér eða beðið um að fá vörurnar sendar til sín með sendingakostnaði sbr. ákvæði í samningi.
Opnunartími
Virka daga frá 8 til 16
svarað í síma virka daga
Staðsetning
Aðalinngangur Landspítala, Fossvogi
Áland 6, 108 Reykjavík (sjá kort)
Göngudeild, meðferð, móttaka, þjónusta búnaðar og læknaviðtöl: A3, 3. hæð
Næturrannsókn eða uppsetning fyrir næturrannsókn: C7, 7. hæð
Afhending skimunartækja og endurnýjun búnaðar: öryggisverðir, 1. hæð
