Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Uppbygging og framvindumat

Uppbygging náms

Samráðsfundir: Námslæknar sitja daglega samráðsfundi með sérfræðingum á meinfræðideildinni við fjölhöfða smásjá. Þar er einkum farið yfir flókin eða sjaldgæf vefjasýni, sem eru erfið í greiningu, sem hefur kennslugildi fyrir námslækna

Kennslufundir námslækna: Sérstakir kennslufundir, eingöngu fyrir námslækna, eru að jafnaði einu sinni í viku. Sérfræðingar í meinafræði sjá um kennsluna, sem er ýmist í fyrirlestrarformi eða við smásjá.

Fræðslufundir: Reglulegir fræðslufundir deildarinnar eru haldnir einu sinni í viku hið minnsta. Að hluta til sjá sérfræðingar í meinafræði og námslæknar um fræðsluna, en einnig er um erlenda fyrirlestra á rafrænu formi að ræða, þar sem þekktir, erlendir sérfræðingar úr heimi meinafræðinnar fara yfir meinafræði hinna ýmsu líffærakerfa með áherslu á nýjungar og greiningarskilmerki.

Sjálfsnám: Læknir í sérnámi stundar sjálfsnám með lestri fræðibóka í meinafræði og vísindagreina, m.a. í tengslum við uppvinnslu vefjasýna. Ýmislegt annað kennsluefni í meinafræði er til staðar á meinafræðideildinni, sem sérnámslæknar geta nýtt sér.

Námskeið og námsferðir: Námslæknir í heilsársstöðu á samningsbundinn rétt á námsferð erlendis einu sinni á hverju námsári. Ferðir þessar geta tengst almennu sérnámi í meinafræði og/eða rannsóknarverkefnum námslækna. Handleiðarar aðstoða með að velja þau þing/námskeið, sem hæfa viðkomandi sérnámslækni miðað við stöðu þeirra í náminu.

Handleiðsla

Sérnámslæknar fá úthlutað handleiðara við upphaf sérnáms. Margir af sérfræðingum meinafræðideildar hafa lokið handleiðaranámskeiði í námstengdri handleiðslu (educational supervision), og þar með klínískri handleiðslu (clinical supervision), hjá Royal Collage of Physicians. Sérnámið í meinafræði fer allt fram á sömu deild og sökum smæðar deildarinnar og mikillar daglegrar nándar sérfræðinga og sérnámslækna, er ekki þörf á sérstökum klínískum handleiðurum, en mikil almenn handleiðsla á sér stað í daglegri vinnu á deildinni.

Handleiðari og sérnámslæknir funda mánaðarlega með formlegum hætti, en sérnámslæknir hefur auk þess greiðan aðgang að handleiðara sínum þess á milli. Handleiðari tekur að sér að styðja, leiðbeina og hafa umsjón og eftirlit með því að námslæknir tileinki sér þá þekkingu og færni, sem marklýsing kveður á um.

Á mánaðarlegum fundi sínum með sérnámslækni er farið yfir framgang sérnáms, líðan í náminu og gefur handleiðari ráð varðandi sérstaka þjálfun ef þörf krefur.

Framvindumat

Námsbók: Sérnámslæknar halda úti námsbók (logbók) fyrir hvort námsár sem inniheldur yfirlit yfir þá þætti, sem námslæknir þarf að læra og geta staðið skil á í lok árs. Í námsbókina skrá námslæknar niður öll unnin verk í samræmi við það og fá þannig góða yfirsýn til þess að meta hvort þeir séu að öðlast þá þjálfun og reynslu, sem marklýsing kveður á um.

Könnun á verklegri færni (Direct observation of practical skills (DOPS)): Fylgst er með verklegri færni sérnámslækna við lýsingu og úrskurð á vefjasýnum og framkvæmd krufninga.

Umræða um tilfelli (Case –based discussions (CBD)): Sérnámslæknir fer yfir tilfelli með sérfræðingi, sem sérnámslæknir er að vinna upp, þar sem rædd er verkleg framkvæmd, smásjárskoðun og greining.

Fjölátta endurgjöf (Multi-source feedback (MSF)): Matskerfi, þar sem ýmsar stéttir innan deildarinnar leggja mat á þætti í fari sérnámslæknis, s.s. framkomu, samstarfs- og teymishæfni og samskiptahæfni.

Verklegt próf í vefjameinafræði/frumumeinafræði (smásjárgreining): Í lok hvors námsárs verður lagt verklegt próf fyrir sérnámslækna til þess að kanna hvort þeir hafi náð námsmarkmiðum í smásjárskoðun og vefjagreiningum skv. marklýsingu.

Almennt mat (símat): Hæfismat sérnámslækna hvað varðar faglega færni og faglega þekkingu fer einnig fram sem símat, þar sem mikil dagleg samvinna og kennsla fer fram milli sérnámslækna og sérfræðinga við daglega vinnu.

Matsfundur: Í lok hvors námsárs er haldinn sérstakur matsfundur, þar sem kennslustjóri, handleiðari og yfirlæknir/forstöðulæknir meinafræðideildar funda með sérnámslækni varðandi framvindu sérnámsins, sérstaklega m.t.t. hvort námslæknir hafi náð settum markmiðum og sé tilbúinn að færast upp um stig/skref í sérnáminu.
Vaktir: Sérnámslæknar skipta með sér bakvöktum á virkum dögum, sem standa frá kl. 16-19 og um helgar frá kl. 8-19.