Sérnám í fæðingar- og kvensjúkdómalækningum
Uppbygging og framvindumat
Uppbygging
Fjöldi sérnámslækna: Á hverjum tíma starfa um 12 sérnámslæknar í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum á kvennadeild Landspítala. Hver þeirra er frá upphafi náms, með sérnámshandleiðara sem fylgir þeim eftir á námstímanum. Auk sérnámslækna í faginu starfa á hverjum tíma á deildinni 2 sérnámslæknar í heimilislækningum og 1-2 læknakandídatar.
Sérfræðingahópur kvennadeildar: Hittist mánaðarlega á fundum, og ræðir þá meðal annars framgang hvers sérnámslæknis og hvernig best má styðja við viðkomandi, til þess að ná sínum markmiðum.
Dagvinna og vaktir
Dagvinnna: Alla virka daga frá kl. 08:00-16:00.
Vaktir:
Virka daga skipta sérnámslæknarnir með sér styttri vöktum frá kl. 16:00-20:00, svokallaðir „stubbar.“
Næturvaktin er svo um kl. 20:00-08:00.
Helgarvaktir eru frá kl. 09:00-21:00 / 21:00-09:00. Sérfræðingur er til staðar í húsi allan vaktatímann og bakka upp sína sérnámslækna á öllum starfsstöðvum.
Kennsla sérnámslækna á kvennadeild:
Klínísk kennsla, bæði fræðaumræða og verkleg inngrip svo sem sónarskoðanir, fer fram á deildum alla daga.
Vikulegir fyrirlestrar sérfræðinga (StratOG) á fimmtudögum.
Þemadagar - hálfsdags fyrirlestrarröð í hverjum mánuði um valið fagtengt efni s.s. aðgerðartækni við speglanir, áhaldainngrip í fæðingum, tíðarhvörf og hormónameðferðir o.fl.
Greinarfundir: Læknar kvennadeildar hittast í heimahúsi 2-3 sinnum á önn þar sem 2 sérnámslækna okkar hafa kynnt sér vísindagrein og fara í gegnum hana með kollegunum, fá aðstoð og umræðu varðandi hvernig meta á gæði rannsókna og birtra greina. Þetta eru mjög skemmtilegir fundir félagslega auk fræðilegs gildis
Námskeið innan húss: PROMPT námskeið í bráðauppákomum tengdum meðgöngum og fæðingum eru nokkrum sinnum á ári.
Ráðstefnur innan lands og utan: Fjölskyldan og barnið (september ár hvert), Græna þing skurð- og svæfingarlækna í apríl. ALSO er ca annað hvert ár. Önnur námskeið í UK/USA/Skandínavíu
Fösudagsfræðslufundir: Klukkutíma fræðslufundir á deildinni hvern föstudag.
M&M fundir eru amk tvisvar á önn á deildinni. Farið á djúpið í ýmis tilfelli með lærdómsríkum vinklum hvað varðar “morbititet/mortalitet” =M&M.
Burðarmálsdauðafundir.
Þverfaglegir teymisfundir.
Framvindumat
Matskerfi: Við styðjumst við viðtöl við sérnámslæknana, sérfræðingafundi og matsblöð ýmis konar, til þess að meta færni okkar sérnámslækna. Dæmi um matsblöð eru CbD, mini-CEX og OSATS auk 360°mats sem gert er 2svar á ári. Það kallast í dag TO (team observation)
Árlegt framvindumat: Gert í lok námsárs. Kallast þessir fundir ARCP (Annual Review of Competence Progression ) og er þar metið hvort námslæknir hefur staðist kröfur námsársins og getur hafið nám á næsta ári
Próf: Ætli sérnámslæknir að sækja um sérnámsstöðu á 3.ári er gerð krafa um að hann hafi lokið stöðuprófi, sem kallast part 1 MRCOG áður. Það er eindregið hvatt til þess að sérnámslæknar, taki og standist prófið fyrir 3.ár sérnáms.
