Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Iðjuþjálfun Laugarási

Þjónusta

Iðjuþjálfun er einstaklingsmiðað ferli sem leitast við að auka færni og þátttöku í að takast á við daglegt líf innan sem utan spítalans. Litið er á einstaklinginn í eigin umhverfi og unnið er með styrkleika viðkomandi.

Markmið iðjuþjálfunar

  • Að efla og viðhalda líkamlegri, andlegri og félagslegri færni í daglegu lífi

  • Nota margs konar iðja til að efla færni sem tengist daglegu lífi á heimili, í vinnu eða við leik og tómstundir.

  • Leitast er við að skapa tækifæri til að takast á við verkefni daglegs lífs sem vekja áhuga, eru mikilvæg, geta veitt gleði og aukið sjálfstraust.

Einstaklingsþjálfun

  • Hentar þeim sem þurfa á auknum stuðning að halda

  • Getur farið fram á viðkomandi deild, úti í samfélaginu eða í heimahúsi.

  • Tenging við ýmis úrræði í samfélaginu og nærumhverfi einstaklingsins.

Hópþjálfun

  • Hentar þeim sem þurfa aukna þjálfun í félagslegum samskiptum

  • Einstaklingar vinna saman í hóp

  • Hver einstaklingur setur sér markmið sem unnið er að í hópþjálfuninni.

Hugmyndafræði

Iðjuþjálfar í geðendurhæfingu styðjast við hugmyndafræði Líkansins um

  • iðju mannsins (Model of Human Occupation)

  • valdeflingar (empowerment)

  • batamiðaðrar þjónustu (recovery model).

Beiðnir

Beiðni um iðjuþjálfun berast frá legu- og göngudeildum, geðlæknum og fagfólki geðsviðs munnlega á teymisfundum/planfundum eða rafrænt. Við mat á færni og getu eru í flestum tilvikum notuð viðurkennd matstæki, spurninga- og gátlistar.