Gjörgæslur
Eftirgæsla - endurkoma eftir gjörgæsludvöl
Gjörgæslumeðferð vegna bráðra og alvarlegra veikinda getur haft áhrif á líkamlega og sálræna heilsu og líðan til lengri eða skemmri tíma. Einstaklingar muna oft óljóst eftir gjörgæsludvölinni og geta meðal annars fundið fyrir þreytu, úthaldsleysi og truflandi minningum þaðan.
Hægt er að bóka tíma í endurkomu eftir gjörgæslu, þar sem sérfræðingur í hjúkrun gjörgæslusjúklinga og gjörgæslusjúkraþjálfari, meta líkamlega og sálræna heilsu og líðan einstaklinga eftir bráð og alvarleg veikindi og veita ráðleggingar um bata.
Sérstaklega er miðað við fólk sem hefur dvalið í þrjá sólarhringa og lengur á gjörgæsludeild en einnig er þeim velkomið að panta tíma sem finna fyrir einkennum eins og truflandi minningum um gjörgæsludvölina, óháð tímalengd gjörgæsludvalar eða tíma frá útskrift af gjörgæsludeild.
Tímapantanir eru í síma: 543-9134 (Sjúkraþjálfun B1, Landspítala Fossvogi).
