Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Þjónusta

Geislameðferð

Geislameðferð er úrræði sem beitt er gegn krabbameini. Tilgangur getur verið að lækna sjúkdóm eða halda honum niðri og draga úr einkennum.

Við komu í geislameðferð

Við komu í geislameðferð þarf að gefa sig fram hjá móttökuriturum sem vísa á biðstofu og gefa tíma fyrir næstu meðferðir. Sjúklingi og aðstandanda eru gefnar upplýsingar.

Undirbúningur

Áður en geislameðferð hefst þarf að undirbúa meðferð. Svæðið sem á að meðhöndla er afmarkað og útbúin geislaáætlun þar sem tryggð er nákvæmni í geislaskammti í meðferðarsvæði um leið og leitast er við að hlífa aðlægum heilbrigðum vef.

Til að tryggja nákvæmni og auðvelda að sjúklingur liggi alltaf í sömu legu við geislameðferð eru oft útbúin stuðningsmót.

  • Svæðið sem á að meðhöndla er merkt með sérstökum húðpenna.

  • Sumir þurfa að koma einu sinni í undirbúning, aðrir tvisvar til þrisvar.

  • Hver heimsókn tekur frá 30 mínútum til 2. klukkustunda og getur undirbúningur tekið allt að viku.

Meðferðin

Geislameðferð er gefin alla virka daga. Sjúkrahúsvist vegna geislameðferðar er yfirleitt óþörf.

  • Tímalengd geislameðferðar er breytileg. Sumir koma í eitt skipti, aðrir daglega í nokkrar vikur.

  • Hver meðferð tekur aðeins nokkrar mínútur og er sársaukalaus.

  • Meðferðin á geisladeild veldur ekki geislavirkni.

Eftir meðferð

Líðan fólks meðan á meðferð stendur er einstaklingsbundin. Oft finnur fólk fyrir þreytu en aðrar aukaverkanir fara meðal annars eftir því hvar á líkamann geislun er gefin og stærð geislasvæðis. Margir stunda áfram vinnu og sinna áhugamálum.

Aðstandendur

Sjúklingur ræður hvort hann hefur aðstandendur með. Aðstandendum eru velkomið að sjá meðferðartækin og vera með í viðtölum. Það gefur færi á að spyrja spurninga og leggja mikilvægar upplýsingar á minnið og veita stuðning.

Það er engin ástæða til að óttast að umgangast fólk sem fær geislameðferð. Við geislameðferð eru notaðir röntgengeislar og sjúklingur verður ekki geislavirkur.

Geisladeildin

Geisladeildin er eini staður á Íslandi þar sem sjúklingum er veitt geislameðferð. Ytri geislameðferð er gefin með línuhröðlum en tveir slíkir eru á deildinni sem nefndir eru Þór og Eir. Við geislameðferð er notuð háorkuröntgengeislun eða rafeindageislun.