Gakktu til liðs við okkur
Mannauðsstefna Landspítala

Mikilvægi mannauðs og velferð sjúklinga
Mannauður Landspítala er mikilvægasta auðlind spítalans og forsenda framúrskarandi heilbrigðisþjónustu.
Mannauðsstefna Landspítala styður við hlutverk, framtíðarsýn og gildi spítalans.
Markmið stefnunnar er að skapa eftirsóknarverðan vinnustað og sameiginlega sýn á hvernig Landspítali laðar að, þróar og heldur í hæft starfsfólk.
Á Landspítala er sjúklingurinn ávallt í öndvegi. Til að tryggja góða þjónustu og öryggi sjúklinga hlúum við að starfsfólki, styðjum við fagmennsku, vellíðan og velferð.
Stefnan inniheldur sjö lykil atriði:
Leiðandi forysta
Stjórnendur okkar gegna lykilhlutverki við að skapa jákvæða vinnustaðamenningu, styðja við starfsfólk og leiða framúrskarandi þjónustu.
Þeir ganga fram með góðu fordæmi og skýrri framtíðarsýn í takt við stefnu og reglur Landspítala. Stjórnendur virkja starfsfólk sitt til þátttöku og skapa umhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa í starfi.
Starfsfólk í forgrunni
Við viljum laða að, velja og halda í hæft starfsfólk.
Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti nýju starfsfólki, veita þjálfun og stuðning sem stuðlar að öryggi og árangri í starfi.
Við hlúum að velferð starfsfólks með fjölbreyttum hætti, heilsusamlegu vinnuumhverfi og tryggjum að starfslok séu fagleg og vönduð.
Öflug teymisvinna
Við leggjum ríka áherslu á teymisvinnu og nýtum þannig styrkleika hvers og eins.
Fjölbreytt sjónarhorn og þekking styrkja ákvarðanatöku, bæta öryggi og gæði þjónustunnar.
Starfsfólk Landspítala vinnur saman sem ein heild með sjúklinginn í öndvegi.
Hæfni og vöxtur
Við viljum tryggja að starfsfólk Landspítala hafi þá hæfni og þekkingu sem þarf til að veita góða þjónustu jafnt í dag sem og í framtíðinni.
Starfsfólk fær tækifæri til að þróast í starfi og nýta hæfni sína til fulls. Við leggjum áherslu á símenntun og að skapa umhverfi sem hvetur til vaxtar.
Umbótamenning
Við viljum vera framsækinn vinnustaður og skapa menningu sem byggir á árangri, umbótum, vísindum og nýsköpun. Árangur í heilbrigðisþjónustu felst í öryggi, gæðum og góðum afköstum, sem styður við stöðuga þróun.
Starfsfólki er ætlað að taka virkan þátt í umbótum, sýna frumkvæði og leita stöðugt leiða við að bæta þjónustu og vinnuumhverfi.
Góð samskipti
Við leggjum okkur fram við að stuðla að hvetjandi starfsumhverfi þar sem samskipti byggja á gagnkvæmri virðingu, trausti og umhyggju.
Við sköpum menningu þar sem starfsfólk getur átt opin og fagleg samskipti. Það geti tjáð hugmyndir, spurt spurninga og lært af atvikum á uppbyggilegan hátt til að auka öryggi og gæði þjónustu.
Við förum öll eftir samskiptasáttmála Landspítala.
Jafnrétti og inngilding
Við viljum að jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding endurspeglist í vinnustaðamenningu spítalans.
Við viljum skapa vinnustað þar sem öll njóta virðingar og hafa jöfn tækifæri til að blómstra í starfi.
Mannauðsstefnan er endurskoðuð á 2 ára fresti.
