Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Um vinnustaðinn

Landspítali er stærsta heilbrigðisstofnun landsins. Þar starfa yfir 7.000 einstaklingar í fjölbreyttum störfum og þverfaglegum teymum.

Á Landspítala gefst tækifæri til að starfa í öflugu fagumhverfi þar sem samstarf, þekking og fagleg þróun eru í fyrirrúmi.

Framtíðarsýn Landspítala er að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu sem byggir á vísindum, fagmennsku og umhyggju.

Eftir­sókn­ar­verður vinnu­staður

Við leggjum áherslu á vinnustaðamenningu sem byggir á virðingu, jafnrétti, inngildingu og góðu samstarfi.
Markmið okkar er að skapa eftirsóknarverðan vinnustað þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa, þróast og njóta sín í starfi.

Starfsþróun

Við styðjum starfsfólk í að efla þekkingu sína og færni með námi, námskeiðum, handleiðslu og þjálfun. Á Landspítala eru fjölbreytt tækifæri til starfsþróunar, nýrra verkefna og starfsframa, innan eigin starfseiningar eða annars staðar á spítalanum.

Skoðaðu störf í boði

Öll laus störf hjá Landspítala eru auglýst á Starfatorgi og birt á vefsíðunni Alfreð.

Sæktu um starf

Við bjóðum:

Samgöngu­samn­ingur

Stytting vinnu­vik­unnar

Samgöngusamningur

Við styðjum starfsfólk sem velur vistvæna samgöngumáta til og frá vinnu með samgöngusamningi

Stytting vinnuvikunnar

Starfsfólk nýtur styttingar vinnuvikunnar samkvæmt gildandi kjarasamningum og skipulagi starfseminnar.

Velferð­ar­torg

Fjar­vinnu­stefna

Velferðartorg

Starfsfólk getur leitað til sérfræðinga Velferðartorgs eftir stuðningi við heilsu og vellíðan. Landspítali greiðir fyrir allt að þrjá tíma á ári fyrir hvern starfsmann.

Fjarvinnustefna

Þar sem starfsemi leyfir er boðið upp á sveigjanleg vinnufyrirkomulag samkvæmt fjarvinnustefnu Landspítala.

Stuðn­ingsteymi

Gott mötu­neyti

Stuðningsteymi

Stuðningsteymi starfsfólks stuðlar að vellíðan starfsfólks með forvörnum gegn kulnun og stuðningi þegar álag eða áföll hafa áhrif á líðan eða starfsgetu

Gott mötuneyti

Starfsfólk hefur aðgang að fjölbreyttu og hollu fæði í mötuneytum Landspítala.

Gildi Landspítala

Gildi okkar móta vinnustaðamenningu Landspítala og eru leiðarljós í samskiptum, samstarfi og þjónustu.

Mannauður og jafnrétti

Við vinnum eftir framsækinni mannauðsstefnu og jafnréttisáætlun með það að markmiði að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem starfsfólk getur vaxið og dafnað.

Ertu með spurningu?

Hafðu samband: mannaudur@landspitali.is