Dagdeild gigtarlækninga
Þjónusta
Deildin þjónustar einstaklinga sem þurfa af einhverjum ástæðum að fá fyrst og fremst ónæmisbælandi lyf og mótefnameðferð í æð, sem krefst nákvæmrar vöktunar og tilheyra eftirfarandi sérgreinum:
Gigtarlækningar
Lungnalækningar
Ónæmislækningar
Taugalækningar
Augnlækningar
Húðlækningar
Nýrnalækninga
Ferli þjónustu
Læknar sækja um lyfjaleyfi til lyfjanefndar Landspítala.
Undirbúningur hefst á göngudeild gigtarlækninga þegar lyfjaleyfi er samþykkt.
Hjúkrunarfræðingur og/eða ritari hafa samband varðandi undirbúning fyrir lyfjagjöf og tímabókun í fræðslu.
