Dagdeild gigtarlækninga
Lyfjameðferðir
Undirbúningur fyrir lyfjameðferð (komu á dagdeild gigtarlækninga)
Ef þú:
hefur fengið sýkingu fyrir áætlaða lyfjagjöf hafðu strax samband við deildina.
ert veikur eða á sýklalyfjum, hafðu samband og frestaðu lyfjagjöf.
getur ekki mætt í úthlutaðan tíma, láttu deildina vita
Aðeins sérhæfð lyfjagjöf fer fram á deildinni
Taktu með afþreyingu, nesti og ef þú vilt, eigin kaffihylki (Nespresso vél er á staðnum)
Gott er að taka með kodda og teppi fyrir lengri meðferðir
Stilltu símann á hljóðlaust. Ef þú þarft að tala í síma, vinsamlegast farið fram.
Ef fylgdarmaður þarf að koma með, hafðu samband við deildina fyrirfram
Virðið friðhelgi annarra sjúklinga.
Við komu á dagdeildina
Skráðu þig inn með því að slá inn kennitölu í standi í anddyri Eiríksstaða
Bíðið á biðstofu þar til þér er vísað inn
Starfsfólk tekur á móti þér og fylgir í lyfjagjöf
Ferli við lyfjagjöf
Lífsmörk eru mæld og spurningarlista um heilsufar svarað. Tímalengd lyfjagjafa (háð einstaklingi):
Cyclofosfamid: 3-4 klukkustundir
Infliximab (Remicade, Flixabi, Remsima): 3,5 klukkustundir í fyrstu fjögur skiptin, eftir það 1-2,5 klukkustundir
Immunoglobulin (Octagam, Gamunex): 2 til 6 klukkustundir
Orencia: 1 til 1,5 klukkustundir
Rituximab (Ruxience): 3,5 til 7 klukkustundir
Roactemra: 1,5 klukkustundir
Bólusetningar
Mælt er með að fara í árlegar inflúensu bólusetningar, einnig er mælt með lungnabólgu bólusetningu
Ekki þarf að taka tillit til tímans á milli lyfjagjafa og bólusetningar.
Þeir sem eru á líftæknilyfjum mega ekki fá lifandi bóluefni og má þar nefna MMR, kóleru og gulsótt.
