Átröskunarteymi Barna og unglingageðdeildar
Efnisyfirlit
Þjónusta
Átröskunarteymið er sérhæft teymi göngudeildar sem hefur aðkomu að málum þar sem líklegt er um átröskun sé að ræða hjá barni eða unglingi.
Ef grunur er um átröskun, vinsamlegast hafið samband við heilsugæslu, sem metur hvort senda þurfi tilvísun í þjónustu.
Átröskunarteymið veitir bæði greiningu og meðferð
Meðferðin miðar að því að hjálpa barni/unglingi að takast á við veikindin með stuðningi foreldra og fagfólks
Lögð er áhersla á að barnið og foreldrarnir læri nýjar og betri leiðir til að takast á við átröskunina og fái betri innsýn í hvaða þættir hindra bata.
Leitast er við að efla sjálfsmynd, líkamsmynd, félagslega færni og samskipti í fjölskyldu í því skyni að bæta líðan og lífsgæði til lengri tíma.
