Sýklalyfjadagurinn 2025
18. nóvember 2025
13:00 til 15:00
Embætti landlæknis, Katrínartún 2

Í tilefni Vitundarvakningar um sýklalyfjaónæmi mun sóttvarnalæknir halda málþing þriðjudaginn 18. nóvember 2025 kl. 13-15 hjá embætti landlæknis, Katrínartúini 2, en einnig verður boðið upp á þátttöku með fjarfundi (Teams). Að þessu sinni er þema málþingsins tengt hjúkrunarheimilum.
Dagurinn 18. nóvember er sérstaklega helgaður vitundarvakningu um sýklalyf hjá Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC). Sama dag hefst vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Tilgangur þessarar vitundarvakningar er að minna almenning, stjórnvöld, heilbrigðisstarfsmenn og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 14. nóvember 2025 með tölvupósti á netfangið juliana.hedinsdottir@landlaeknir.is og takið fram hvort þið hyggist mæta á staðinn eða hlusta á fundinn í streymi. Hlekkir til að tengjast fundinum verða sendir til þeirra sem hafa skráð sig þegar nær dregur.
Dagskrá
Sýklalyfjanotkun, sýklalyfjaónæmi og aðgerðaráætlun
Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir, sóttvarnasvið, embætti landlæknisNiðurstöður ECDC HALT-4 rannsóknar og lærdómur
Steinunn Þórðardóttir, framkvæmdstjóri lækninga á HrafnistuKlínískar leiðbeiningar þvagfærasýkingar hjá hrumu eldra fólki
Ólafur Helgi Samúelsson, framkvæmdastjóri lækninga á Eir
Kaffihlé (20 mín)
Sýkingavarnir og ónæmar bakteríur á hjúkrunarheimilum
Bjarney Sigurðardóttir, sýkingavarnastjóri á Hrafnistu
Sigríður Sigurðardóttir, sviðsstjóri gæða- og fræðslusviðs á Grund
Sýklalyfjagæsla á hjúkrunarheimilum
Jón Steinar Jónsson, yfirlæknir gæðaþróunar, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Már Egilsson, heimilislæknir og Strama tengiliður, Heilbrigðisstofnun Austurlands
Fundarstjóri verður Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir