Vöktun á lekanda og klamydíu – nýtt mælaborð sóttvarnalæknis
3. október 2024
Vegna aukinnar tíðni kynsjúkdóma hér á landi og víðar, sér í lagi lekanda, hefur sóttvarnalæknir nú birt gagnvirkt mælaborð með tölulegum upplýsingum um lekanda og klamydíu til þess að auka aðgengi að þessum gögnum.
Upplýsingar sem birtast í mælaborðinu byggja á gögnum úr smitsjúkdómaskrá sem eiga uppruna sinn á rannsóknarstofum. Fyrirhugað er að uppfæra mælaborðið í upphafi hvers ársfjórðungs.
Sóttvarnalæknir