Viðurkenning Lífsbrúar fyrir framlag til sjálfsvígsforvarna 2026
4. september 2026
Viðurkenning Lífsbrúar til einstaklings og liðsheildar var afhent á formlegri opnun vitundarvakningarinnar Gulur september þann 1. september í Háskólanum í Reykjavík.

María Heimisdóttir, Högni Óskarsson og Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir
Opnunarviðburðurinn var haldinn að viðstöddu fjölmenni og tókst vel. Flutt voru ávörp, hugvekja og tónlistaratriði. Nýtt fjögurra stafa símanúmer Píeta samtakanna kynnt en það er 1799. Á viðburðinum voru einnig fjölmörg félagasamtök og stofnanir sem vinna að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum með kynningarbása og kynntu starfsemi sína.
Viðurkenning Lífsbrúar
Í ár er viðurkenning Lífsbrúar – miðstöð sjálfsvígsforvarna veitt í þriðja sinn. Viðurkenningin er veitt fyrir mikilsvert framlag til sjálfsvígsforvarna á Íslandi, fyrir að auka þekkingu á málefninu og stuðla að bættri heilsu og líðan landsmanna.
Handhafar viðurkenningarinnar árið 2026 eru:
Högni Óskarsson geðlæknir – í flokki einstaklinga
Hugarafl – í flokki liðsheilda
Högni Óskarsson geðlæknir hefur um árabil verið einn af lykilaðilum í uppbyggingu þekkingar og rannsókna á sviði sjálfsvígsforvarna á Íslandi ásamt því að vera ötull baráttumaður fyrir stofnun Lífsbrúar, vettvangs þar sem haldið er utan um vinnu við sjálfsvígsforvarnir í landinu.
Hugarafl fær viðurkenninguna fyrir sitt mikilvæga starf en Hugarafl er samfélag jafningja sem styðja hvert annað, deila reynslu og efla geðheilsu með virðingu og von að leiðarljósi.

Hugarafl tekur á móti viðurkenningunni. Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, Sigrún Huld Sigrúnar, Rakel Björk Haraldsdóttir, Grétar Björnsson, Auður Axelsdóttir og María Heimisdóttir
Markmiðið með viðurkenningu Lífsbrúar er að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem unnið er víða í samfélaginu og heiðra þau sem hafa með störfum sínum stuðlað að aukinni þekkingu, vitund og bættri heilsu og líðan.
Lífsbrú óskar Högna Óskarssyni og Hugarafli innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar mikilvægt framlag þeirra til sjálfsvígsforvarna á Íslandi.
Hægt er að senda inn tilnefningar til viðurkenningar Lífsbrúar, allan ársins hring.
Frekari upplýsingar:
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri sjálfsvígsforvarna
gudrun.j.gudlaugsdottir@landlaeknir.is
Ljósmyndir: Kristinn Magnússon